Viðhorfskönnun – samanburður fyrir og eftir tilraun

Borghildur stóð fyrir viðhorfskönnun um göngugötutilraunina á Laugavegi bæði áður en tilraun hófst og eftir að henni lauk. Könnunin var tvítekin til að athuga hvort, og þá hvernig, viðhorf rekstraraðila og vegfarenda breyttist við að upplifa götuna án bíla.

Fyrir tilraun:

 

Eftir tilraun:

Sýnilegur munur var á viðhorfi rekstraraðila fyrir og eftir tilraunina. Í júní sögðust 43% þeirra rekstraraðila sem náðist í vera hlynntir tilrauninni en 33% voru mótfallnir. Eftir að tilrauninni lauk sögðust hins vegar 69% þeirra vilja hafa Laugaveg göngugötu á sumrin.

 

Lítill munur var á viðhorfi vegfarenda fyrir og eftir tilraunina. Yfirgnæfandi meirihluti var hlynntur tilrauninni, eða 82%, og eftir tilraunina sögðust 91% vilja hafa Laugaveg göngugötu yfir sumartímann.

 

Rekstraraðilar sem tóku þátt í viðhorfskönnuninni voru beðnir um að spá fyrir um áhrif tilraunarinnar á viðskiptin. 43% þeirra sögðust halda að viðskipti myndu minnka en 27% töldu að annað hvort myndu þau haldast eins eða aukast. Þegar spurt var í seinna skiptið sögðu 67% viðskiptin hafa haldist óbreytt eða glæðst, en aðeins 11% sögðu þau hafa dregist saman.

 

Meirihluti aðspurðra vegfarenda sagðist hafa notað þjónustu við Laugaveginn meira á meðan hann var göngugata.

 

Í heildina má draga þá ályktun að fólk sé almennt sátt við að hafa Laugaveg göngugötu á sumrin, sérstaklega vegfarendur. Flestir aðspurðir rekstraraðilar telja göngugötuna ekki hafa skaðað viðskipti sín, annað hvort hafi þau haldist óbreytt eða aukist. Hvorki rekstraraðilar né vegfarendur eru þó tilbúnir í að Laugavegurinn sé göngugata allan ársins hring og breytti tilraunin litlu um þau mál.

Comments