Ingólfstorg og Bernhöftstorfa

Á Ingólfstorgi er ýmislegt um að vera og oft margt um manninn. Þó eru ákveðnir þættir sem vinna gegn því að mannlíf skapist á torginu. Veggir umlykja torgið og slíta það frá umhverfi sínu. Lítil sem engin tenging er því á milli torgins og þeirri starfssemi sem finnst í kring. Einu bekkjum torgsins er sökkt í vegginn og þess vegna er eins og þeir hverfi innan í hann. Torgið sjálft er stórt og virkar stundum dálítið tómlegt. Torgið hefur skapað sér sérstöðu en þar koma saman ákveðnir hópar sem nýta sér þessa eiginleika torgsins sem sumum gætu þótt ókostir. Hjólabrettafólk og mótorhjólaiðkendur nýta sér sléttan flötinn sem torgið býður upp á og eru þeir reglulega á svæðinu. Þeir gefa torginu ákveðna sérstöðu og skapa mannlíf sem sést hvergi annars staðar. Á góðum dögum hafa þessir hópar og þá sérstaklega hjólabrettafólkið áhorfendur sem setjast í tröppur og á bekki til að fylgjast með hasarnum sem fram fer.

Daglegt líf á Ingólfstorgi sumarið 2010:

Á meðan hjólabretti og mótorhjól þeysast um á Ingólfstorgi eru aðrir staðir í borginni heldur hljóðari. Einn þeirra er Bernhöftstorfan en þar er allt annað andrúmsloft. Torfan felur sig frá götunni með gróðri og því er stemmningin róleg og notaleg og nóg er af stöðum til að sitja á. Þangað kemur fólk oft eitt með sjálfu sér eða í litlum hópum. Aðal iðjan á torfunni er bókalestur eða nestisát.

Það voru bæði gerðar tilraunir á Ingólfstorgi og Bernhöftstorfunni í sumar. Tilraunirnar voru hluti af verkefninu Torg í biðstöðu. Hópurinn Betri stofa borgarinnar tók að sér Ingólfstorg. Hópurinn ákvað að vinna með innskotin þar sem bekkir eru staðsettir á torginu. Þau vildu draga setuaðstöðuna út frá innskotunum og fram á torgið. Jafnframt vildu þau búa til flóknari setuaðstöðu þar sem fleiri gætu nýtt sér sætin og verið á torginu. Innsetningin býður upp á fleiri möguleika en bekkirnir. Fleiri geta sest niður og sérstaklega er gaman að sjá hvernig hópar fólks fá sér sæti án þess að þekkjast innbyrðis. Þeir sem sitja á innsetningunni verða ósjálfrátt þáttakendur í mannlífi torgsins, ólíkt því sem gerðist á földum bekkjunum. Innsetningin opnar leið upp á veggina umhverfis torgið og brýtur þannig niður þröskuldinn milli torgsins og aðliggjandi umhverfis.

Á Ingólfstorgi unnu innsetningar vel með þeirri daglegu notkun sem skapast hefur á svæðinu. Betri stofa borgarinnar bætti við innsetningum þegar leið á sumarið. Á bílastæði utan við torgið settu þau upp innsetningu sem virkaði vel fyrir gesti ísbúðarinnar. Einnig bættu þau við innsetningu inná torgið sjálft í samráði við hjólabrettakrakka. Innblástur af daglegri notkun torgsins er ástæða þess að hönnun hópsins virkar jafn vel og raun ber vitni. Andi og notkun staðarins hefur því ekki beinlínis breyst. Einfaldlega hefur hönnunin gert daglega notkun þægilegri og skemmtilegri.

Á Bernhöftstorfunni var unnið með þá þætti sem fyrir voru á staðnum og komið fyrir stöplum á auð svæði. Stöplarnir bjóða nú uppá fjölbreyttari sætanotkun en áður, líkt og á Ingólfstorgi.

Hópurinn vann með taflið sem er á staðnum og færði mynstrið út á ónýtt svæði á torfunni. Upp úr mynstrinu rísa svo stöplar sem geta nýst sem sæti og borð en einnig eru nokkrar tegundir spilaborða á þeim og svæðið hugsað sem leiksvæði til að spila. Með þessu vildi hópurinn reyna að fá fleira fólk inná torgið og nýta betur allt svæðið en ekki bara jaðrana og skapa þannig meira líf.

Á venjulegum degi virka stöplarnir helst sem sæti, borð eða leiktæki fyrir börn. Það virðist nokkuð tilviljanakennt hvort fólk nýtir sér innsetninguna frekar en önnur sæti á staðnum. Mannlífið dreifist meira á svæðinu eftir tilkomu stöplana og fólk notar ekki lengur eingöngu jaðrana. Samt sem áður virðist grasið ennþá hafa vinninginn þegar kemur að því að slappa af á þessum hljóðláta stað. Stöplarnir eru sýnilegir frá Lækjargötu. Máluðu fletirnir í stéttinni byrja við götuna og var ætlað að leiða fólk inn á Torfuna. Flæðið hefur þó lítið breyst og notkunin er svipuð. Staðurinn er því ennþá út af fyrir sig inni í borginni en það er kannski einmitt það sem gerir hann að því sem hann er.


Comments