Hönnunarteymið Barabúmm vann með grænt svæði við Rúnuróló sem liggur við Snekkjuvog. Á svæðinu er lítil skeifa með hellulögðu plani í miðju. Á planið komu þær fyrir sviði og héldu skemmtilega hverfishátíð í júlí. Teymið samanstendur af þeim Elsu Ýr Bernhardsdóttur, Hörpu Björnsdóttur, Heiðdísi Helgadóttur, Helgu Björg Kjerúlf og Ylfu Geirsdóttur.






