Borgaraleg hegðun

Sumarið 2010 lagði Borghildur upp í rannsóknarleiðangur um miðbæ Reykjavíkur. Viðfangsefnið var mannlíf í borginni. Borgaraleg hegðun samanstendur af kvikmynd og rannsóknarskýrslu um viðfangsefnið. Verkefnið er innblásið af rannsóknum borgarfrömuðsins William H. Whyte og arkitektsins Jan Gehl. Kvikmyndin Borgaraleg hegðun var sýnd fyrir fullu húsi í BíóParadís 3. desember 2010.

Hér er stikla úr myndinni.

Hér má nálgast rannsóknarskýrsluna:

Hér má sjá rannsóknarskýrsluna:

Nýsköpunarsjóður námsmanna og Evrópa unga fólksins styrktu Borghildi til verkefnisins. Borghildur hafði aðsetur í Útgerðinni sumarið 2010.