Hluta Laugavegs var breytt í göngugötu 1. júlí síðastliðinn og var göngugata um fimm vikna skeið í tilraunaskyni. Þegar götunni var lokað var áætlað að hafa hana göngugötu í mánuð en að óskum verslunarmanna var göngugatan framlengd um viku. Borghildur fylgdist með framgangi tilraunarinnar á Laugavegi í sumar. Áherslan var á að skoða mannlífið og upplifunina sem eru mjög mikilvægir og áhrifaríkir þættir í breytingunni, en jafnframt er erfitt að mæla þá.
Í júní var gatan rannsökuð eins og hún hefur verið undanfarin ár, með bílaumferð. Gerðar voru skráningar á því hvar fólk nam staðar, myndbands- og hljóðupptökur, viðhorfskannanir þar sem rætt var við rekstraraðila og vegfarendur og tekin voru upp viðtöl við fimm rekstraraðila. Allt var þetta endurtekið á meðan á tilrauninni stóð eða að henni lokinni til þess að fá samanburð. Þá var verið að leita eftir því hvort viðhorf hefði breyst og að hvaða leyti. Einnig var verið að falast eftir því hvort eða hvernig tilraunin hefði haft áhrif á viðskipti, notkun og upplifun vegfarenda. Loks voru tekin viðtöl við þrjá sérfræðinga á sviði arkitektúrs og skipulagsmála til þess að sýna áhorfendum víðara sjónarhorn á göngugötutilraunina og skipulag miðbæjarins.
Gerð var rannsókn á því hvar fólk nam staðar á virkum degi í júní og aftur í júlí. Þá var merkt við fjórum sinnum yfir daginn hvar fólk nam staðar og einnig horft til þess hvers vegna fólk stoppaði. Rannsóknin á Laugavegi sýndi að hátt í 90 prósent aukning varð í stoppum. Auk þess var mynstrið öðruvísi og stoppin dreifðust jafnar um götuna.

Punktarnir á kortunum sýna hvar fólk stoppar á Laugavegi og sýna bæði kortin mynstrið yfir daginn. Á kortinu til vinstri gefur að líta virkan dag í júní og þar eru bílar einnig merktir inn á. Á kortinu til hægri má sjá virkan dag í júlí.
Samanburðurinn var raunhæfur með tilliti til veðurs því aðstæður voru sambærilegar á fyrri rannsóknardegi í lok júní og seinni rannsóknardegi í lok júlí. (Fyrri rannsóknardagur var þriðjudagurinn 21. júní, meðalhiti frá 9:00 til 18:00 12,1°C, léttskýjað. Seinni rannsóknardagur var miðvikudagurinn 20 júlí, meðalhiti frá 9:00 til 18:00 12,3°C, léttskýjað.) Borghildur fékk aðgang að umferðartalningum sem framkvæmdar voru hjá Reykjavíkurborg vegna göngugötunnar. Talningarnar voru gerðar á tveimur gatnamótum sitt hvorum megin við göngugötusvæðið og voru framkvæmdar í júní, júlí og ágúst. Talningarnar sýndu að gangandi umferð jókst um rúmlega helming á milli mánaða frá júní til júlí og styðja við rannsókn Borghildar á því hvar fólk nam staðar. Út frá niðurstöðum beggja rannsókna má sjá að fleiri voru á ferli á meðan gatan var göngugata og hlutfallslega stöldruðu fleiri við en áður. Einnig má sjá á umferðartalningunum að bílaumferð var ekki jafn mikil eftir tilraunina þó Laugavegurinn væri allur opinn fyrir bílaumferð.
Borghildur hefur safnað mikið af efni um Laugaveginn í sumar með rannsóknum en einnig með því að ræða við fólk, bæði í formlegum viðtölum og óformlegri samtölum. Flestir hafa skoðun á Laugaveginum og svo virðist vera að flestir vilji það sama í grunnatriðum: betra borgarlíf og að viðskiptin blómstri.
Ýmsir hafa áhyggjur af aðgengismálum, bæði fyrir hreyfihamlaða og vörumóttöku. Sumir tala um að fáir fari á Laugaveg í slæmu veðri ef engir bílar séu leyfilegir. Enn aðrir segja að það sé mikilvægt að leyfa bílaumferð því á kvöldin þegar fólk rúntar niður Laugaveginn sé það að skoða í verslanagluggana í leiðinni. Allt eru þetta málefni sem þarf að skoða verði Laugavegur gerður að göngugötu til frambúðar eða á hverju sumri. Hins vegar eru göngugötur alls ekki nýjar af nálinni og því þurfa Reykvíkingar ekki að finna upp hjólið til þess að halda úti einni slíkri. Göngugötur þrífast með ágætum út um allan heim og ekki síst á Norðurlöndunum þar sem veðuraðstæður eru ekki alltaf hagstæðar. Göngugötutilraunin í sumar hafði víðtæk áhrif sem sést ekki síst á því að hún vakti fólk til umhugsunar um miðborgina og kveikti á mikilvægri umræðu.
Fleiri Borgarstiklur frá sumrinu á Laugavegi:
Viðhorfskönnun – samanburður fyrir og eftir tilraun
Viðhorf rekstraraðila til göngugötu
Göngugatan Laugavegur í víðara samhengi
Blöndun ólíkra tegunda umferðar á gatnamótum Laugavegs og Skólavörðustígs
Upplifun kaffihúsagesta á Laugavegi
Hjóðbrot af Laugavegi með bílum og án bíla
