
Tilraunir hafa verið gerðar með svæðin þar sem bílastæði hafa verið fjarlægð og það hefur sýnt sig að þau hafi mikla möguleika sem torg. Torgin virka meðal annars sem samkomustaðir íbúanna, hvort sem samskiptin eru fyrirfram ákveðin eða óvænt. Sú starfsemi sem er á svæðunum virðist njóta góðs af tilraununum og tilraunirnar af starfseminni. Afstaða svæðanna er heppileg með tilliti til sólar og þau eru skjólgóð. Þessi svæði eru skotstund frá aðal verslunar- og þjónustusvæði miðbæjarins en eru þrátt fyrir það út af fyrir sig og ekki í alfaraleið. Staðsetning innan íbúðahverfis býður upp á allt annað andrúmsloft en er á stærri almenningssvæðum á borð við Austurvöll og Lækjartorg.

Freyjutorg: Það er kannski ofmat að kalla gatnamót Freyjugötu, Óðinsgötu og Bjargarstígs torg. Á svæðinu er þó bæði starfsemi og endurvinnslustöð svo ljóst er að fólk á þangað erindi. Gatnamótin hafa einhver látlaus gæði að bera sem hægt væri að virkja.

Káratorg: Við gatnamót Njálsgötu, Frakkastígs og Kárastígs er opið svæði. Við sitthvorn enda svæðisins er vinsæl starfsemi sem dregur fólk að, Drekinn og Kaffismiðjan. Á milli vantar eitthvað sem tengir saman starfsemina og býður fólki að staldra við en þar eru núna bílastæði.
Af þessum svæðum er Baldurstorg raunverulega það eina sem tekin hefur verið ákvörðun um að sé varanlegt torg. Sumarið 2010 var því breytt úr bílastæði í torg og var það stórt skref fyrir svæðið. Útfærsla torgsins síðasta sumar var undarleg og umdeild. Það sem var gott við torgið var hvernig ferðarýmið breyttist. Undirlagið var eins inni á torginu og á akbrautunum svo ferðarými bíla, hjóla og gangandi vegfarenda flæddi saman og umferð varð hæg og blönduð. Fáir stöldruðu þó lengi við á torginu. Útfærslu síðasta sumars má sjá hér.
Þrátt fyrir að ráðist hafi verið í þessar framkvæmdir sumarið 2010 var tekin ákvörðun um að endurgera torgið nú í sumar sem hluta af verkefninu Torg í biðstöðu. Nú er torgið lokað frá akbrautunum og þar með er búið að aðgreina umferð algerlega. Þrátt fyrir að lítil reynsla sé komin á nýja torgið má strax sjá að torgið býður vegfarendum frekar að staldra við en áður var.

- Baldurstorg: Hugmynd hópsins Rúmmeters, sem hannaði torgið, var að mynda skjól og fá náttúru inn í borgina. Hópurinn vildi afmarka torgið betur og hafa það aðgengilegra til notkunar fyrir nágranna þess.
Líkt og hin hverfatorgin hefur Óðinstorg verið undirlagt af bílastæðum um árabil. Annað árið í röð er verið að gera tilraun með að fjarlægja bílastæðin á Óðinstorgi. Í sumar hafa Endur-skoðendur borgarinnar tekið Óðinstorg að sér sem hluta af verkefninu Torg í biðstöðu.

- Óðinstorg: Á laugardögum í sumar héldu Endur-skoðendur borgarinnar markað á torginu og var þá bílastæðið lokað. Á virkum dögum voru fjögur bílastæði frátekin fyrir gesti torgsins. Stæðin voru þökulögð og á þau sett borgarhúsgögn. Kaffihúsið C is for Cookie afgreiddi veitingar út á torgið.
Tilraunin á Óðinstorgi heppnaðist vel í sumar. Grassvæðið var í stanslausri notkun þegar vel viðraði og markaðurinn vinsæll um helgar. Leikvöllurinn við torgið var mun virkari en áður var og virkaði sem framlenging af torginu, hvort sem hann var notaður til leiks eða til að setjast niður með kaffibolla. Þrátt fyrir vel heppnaða tilraun má segja að það hafi þegar verið búið að sanna að Óðinstorg beri sig vel sem torg því þar var líka gerð tilraun sumarið 2010. Íbúar og aðrir gestir voru ánægðir þá líkt og núna og vildu frekar hafa torg en bíla. Tilraunin í sumar var því staðfesting á því sem þegar var vitað. Nú má kannski spyrja hvort ekki sé orðið tímabært að hætta tilraunastarfsemi og taka ákvörðun um framtíð Óðinstorgs sem torgs frekar en bílastæðis.
