Borgarstiklur

Sumarið 2011 mun Borghildur rannsaka mannlífið í miðbæ Reykjavíkur. Lögð verður sérstök áhersla á áhrif breytinga á götum og torgum bæjarins, bæði stórum og smáum. Fylgst verður ítarlega með Laugavegi, sem gerður verður að göngugötu 1. júlí næstkomandi, Austurstræti skoðað sérstaklega með tilliti til nýbygginga á horni og lokun fyrir bílaumferð. Að lokum er Borghildur í samstarfi við verkefnið Torg í biðstöðu sem styrkt er af Reykjavíkurborg. Torg í biðstöðu eru tímabundin verkefni nokkurra mismunandi hópa á hinum ýmsu torgum í miðborginni. Mun hver hópur ættleiða eitt til tvö torg og reyna eftir fremsta megni að glæða þau lífi.

 

Borghildur leitast við að finna og nota tæki til að rannsaka hvernig vegfarendur skynja umhverfi sitt.

 

Rannsóknirnar byggist á ýmsum aðferðum og notast Borghildur við myndbönd, hljóðupptökur, talningar og kortagerð. Reynt verður að fanga borgarbraginn fyrir breytingar og sjá og skrá hvort og/eða hvernig hann breytist í kjölfar þeirra. Þá er meðal annars átt við hvort gangandi og hjólandi vegfarendum fjölgar, hvort fleiri staldri við á svæðunum og hvort fólk nýti götuna sjálfa til ferðalags og íverustaðar.

 

Borghildur reynir að vekja athygli á því sem dregur að vegfarendur og benda á það sem virðist virka fráhrindandi á fólk. Niðurstöður og vangaveltur Borghildar munu birtast jafnóðum hér á heimasíðunni í formi örmynda og pistla, sem saman mynda Borgarstiklur.

 

Comments