19/08/11
Vegfarendur á Laugavegi
Nokkrir vegfarendur voru inntir eftir því hvernig gata Laugavegur væri og hvernig þeim finndist gatan sem göngusvæði.
Reynt var eftir fremsta megni að tala við fólk á öllum aldri og halda kynjahlutföllum í jafnvægi til fá einskonar þverskurð af notendahóp Laugavegs. Viðtölin í myndbandinu eru tekin 29. júlí og 5. ágúst. Annan daginn var úrhellis rigning, hinn glampandi sólskin. Tölur í lok myndbandsins eru teknar úr viðhorfskönnun framkvæmdri af Borghildi 8. ágúst, en þá hafði verið opnað fyrir bílaumferð að nýju.

Comments